Jæja Ásgerður skellti sér í sveitina um helgina og var það bara
fjör 
Fékk far með gamla settinu norður þannig að praktískt séð var ég
bíllaus þarna á hjara veraldar en það var nú í lagi. Komum um hálf
tíu á Reykjarhól en að sjálfsögðu ekki fyrr en við vorum búin að
kíkja á nýbygginguna á Sjónarhóli sem þrusast áfram, held bara að
þau geti bráðum farið að flytja inn.
Fengum okkur örlítinn öllara þarna á föstudagskvöld í tilefni
þess að heimilis faðirinn átti afmæli. Svo á laugardaginn fór ég í
krókinn með tertuna (þýsk) og kíkta að sjálfsögðu á Herdísi mína og
framkvæmdirnar sem eru þar í gangi, aðeins verið að breyta þar
útliti hússins. Truflaði hana s.s frá vinnu kannski aðeins of
lengi.
Hrefna ég sá þig á rúntinum og reyndi að hringja til að fá þig í
einn bolla með mér af því ég komst ekki í afmælisveisluna. Manst
það næst að svara í símann 
Þurfti svo að vera komin á Sjónarhól kl hálf sjö til að taka
vinnumennina með mér heim þar sem Halldór fór snemma til að fara
með sinni heittelskuðu út að borða.
Fengum okkur að sjálfsögðu aftur bauk(a) um kvöldið og sat ég
víst og kjaftaði til hálf átta um morguninn hehe 
En það er öruggt að ég fer allavega einu sinni ef ekki bara
tvisvar aftur norður áður en fjórar vikur verða liðnar, jahhh
kannski þrisvar sjáum til...
Það er fallegt í sveitinni hehe 
Þangað til næst eruð þið harðduglegir og sólbrúnir smiðir 